Verkefnahópur um fyrirkomulag við gerð kerfiskennitalna/gervikennitalna
Verkefnahópnum er falið að endurskoða núverandi fyrirkomulag við gerð kerfiskennitalna/gervikennitalna fyrir ferðamenn.
Í skýrslu viðbragðsteymis sem skipað var af heilbrigðisráðherra vegna bráðamóttöku, sem lauk störfum árið 2022, er að finna eftirfarandi lýsingu á vandamáli:
„Núverandi fyrirkomulag við gerð gervikennitalna fyrir ferðamenn veldur margvíslegum kerfislægum vandkvæðum við veitingu bráðaþjónustu. Í fyrsta lagi veldur fyrirkomulagið töfum á þjónustu í sumum tilvikum þar sem ýmis þjónusta og kerfi eru háð því að kennitala sé til staðar. Þessi töf og vinna við gerð gervikennitalna veldur auknu álagi á heilbrigðisstarfsfólk. Auk þess er hætta á að mikilvægar sjúkraskrárupplýsingar berist ekki milli starfsstöðva í heilbrigðiskerfinu eða að tveir einstaklingar fái sömu gervikennitöluna og rangar upplýsingar berist því með sjúklingi“.
Verkefnahópinn skipa
- Guðríður Bolladóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu, án tilnefningar, formaður
- Jón Magnús Kristjánsson, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu, án tilnefningar
- Ólöf María Vigfúsdóttir, tilnefnd af dómsmálaráðuneytinu
- Stefán Daníel Jónsson, tilnefndur af félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu
- Skúli Þór Gunnsteinsson, tilnefndur af innviðaráðuneytinu
Verkefnahópurinn er skipaður af heilbrigðisráðherra 27. apríl 2023.