Hoppa yfir valmynd
27. mars 2024 Dómsmálaráðuneytið

Sindri M. Stephensen metinn hæfastur í embætti héraðsdómara

Hinn 16. febrúar 2024 auglýsti dómsmálaráðuneytið lausa til umsóknar setningu í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur. Tvær umsóknir bárust um embættið. Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni til dómsmálaráðherra og er það mat nefndarinnar að Sindri M. Stephensen sé hæfastur umsækjenda til að hljóta setningu í embættið.

Dómnefndina skipuðu: Ása Ólafsdóttir, formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Kristín Benediktsdóttir, Reimar Pétursson og Þorgeir Örlygsson.

 

Umsögn dómnefndar

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum